top of page

Ég var að byrja í skólanum og það er allt að breytast

  • kolbrungardarsdott
  • Jan 14
  • 3 min read

Ég var að byrja í skólanum aftur og mikið hefur breyst. Númer eitt þá var ég að byrja í tölfræði áfanga og við þurfum eiginlega að læra að forrita og ég er engan veginn að fylgja. Við erum búin að fara einn tíma og ég er nú þegar týnd. Númer tvö þá er ég bara mjög ánægð með alla kennarana mína. Númer þrjú þá var ég að skrifa undir leigusamning hjá stúdentagörðum. Ég á að flytja inn í mars. Ég fékk tölvupóstinn í gær um að ég hefði fengið úthlutun og ég er svo spennt. Íbúðin er á efstu hæð í blokk og 40 fermetrar, sem er stærsta stúdíóið sem hægt er að fá á stúdentagörðum. Ég trúi varla hversu heppin ég var. Þetta kom allt mjög skyndilega og óvænt, ég var ekki að búast við að fá úthlutun fyrr en kannski í haust. Á sama tíma er ég samt smá kvíðin. Hvað ef ég bókstaflega dey úr einsemd? Æi, en ég er svo spennt að ég gleymi kvíðanum. 

Ég er búin að vera að skoða skiptinám upp á síðkastið og var að stefna á að fara út eftir ár, semsagt næstu vorönn. Mig langar svo ótrúlega til Nýja Sjálands. Alveg rosalega. Svo mikið að ég get ekki lýst því. Ég var búin að velja skólann sem mig langar í og búin að gúggla allt sem ég gat um borgina sem hann er í, búin að skoða hvar ég myndi búa og hvaða áfanga ég myndi taka. Svo breytti gærdagurinn öllum þessum plönum. Í fyrsta lagi fór ég á fund um skiptinám og uppgötvaði að enginn styrkur er veittur til skiptináms til Nýja Sjálands. Ef ég fæti einhvert annað gæti ég fengið ferða- og dvalarstyrk og blabla. Það væri auðvitað frábært, og að fara til Nýja Sjálands, hinum megin á hnettinum, án styrks, þegar ég gæti farið einhvert annað á styrk er svolítið galin hugmynd. En mig langar bara SVO MIKIÐ. Svo fékk ég þessa íbúð og mig langar ekki til þess að gefa hana upp eftir ár. Ég er allavega búin að skrifa undir leigusamninginn og ætla að flytja inn. Ef ég hefði ekki fengið svona góða íbúð hefði ég kannski ekki gert það vegna skiptinámsins. Ég er bara ekki alveg viss um hvort að ég ætti ennþá að sækja um að fara til Nýja Sjálands eða ekki. Ég veit að mig langar í skiptinám. Námið hérna var ekki alveg eins pg ég var að búast við. Það er eiginlega eins og ég var svolítið hrædd um að það yrði. Námið sjálft er að vissu bara fínt. Skemmtilegt jafnvel. Ég er mjög spennt yfir dýrafræði áfanganum sem ég er að byrja í og örverufræði. Ætli mér komi bara ekki mjög vel saman við hitt fólkið á námsbrautinni. Það er skrítin orka hérna. Ég hef samt alveg fólk sem ég get setið með í tímum og þannig, það er ekkert vesen. Ég sakna líka bara vinkvenna minna úr Noregi og ég öfunda fólkið hérna sem hittir oft vini sína úr menntaskóla. 

Ég ætti að byrja að lesa kaflann úr örverufræðibókinni sem ég kom hingað á bókasafnið til að lesa. Ég fattaði yfir fríið hversu mikið mér finnst gaman í skólanum. Eða kannski meina ég hversu gaman mér finnst að læra. Eða kannski meina ég hversu mikið mér finnst ég eiga heima í skóla. Í gær eftir einn tíma það sem við höfðum verið að tala um kennslubók áfangans segir ein manneskja sem ég sit oft með við mig: "Hver er eiginlega að því? Hver les í alvörunni kennslubækurnar?" Ég fór næstum því að hlæja af því ég hélt að við værum alveg nokkur að því. Ég hélt að HÚN væri að því. Í fyrra sagði önnur við mig: "Ég þurfti sko að fara í BÓKINA til þess að finna þessar upplýsingar, þær voru ekki á glærunum." Ég fór næstum því líka að hlæja þá.

Recent Posts

See All
Fyrsta snjókoman

Fyrsti alvöru snjór vetrarins fellur niður úti og hefur verið að gera það í allt kvöld. Það er eitthvað við að sjá snjókornin lýstast upp undir ljósastaurshausnum fyrir utan gluggann og að liggja uppi

 
 
 
Ég er allavega ekki með námskvíða.

Ókei, miðannarprófin eru búin og ég er komin meira en helminginn inn í fyrstu önnina af háskólanámi. Það er meira að segja u.þ.b. mánuður í fyrsta lokapróf, sem er algjört brjálæði. Ég gerði mér bara

 
 
 
Risaeðlur og ég

Ég kláraði bókina Words in Deep Blue í gær í annað skiptið. Ég fékk hana í afmælisgjöf fyrir tveimur árum frá vinkonu minni sem fann hana...

 
 
 

Comments


Share your thoughts...

Message Received!

© 2023 by Thoughts Express. All rights reserved.

bottom of page