top of page

Sumarið bíður

  • 15 hours ago
  • 3 min read

Ég skrifaði þetta um daginn þegar ég átti að vera að læra fyrir lokaprófin mín.


Komið þið öll heil og sæl,


Ég sit við skrifborð í öskju, búin að plana hvað ég ætla að gera til þess að læra fyrir tölfræðilokaprófið sem ég tek eftir 3 daga og ég get ekki gert annað en að hugsa um sumarið framundan. Það er ekki búið að vera mjög hlýtt undanfarið en það hefur verið sól og bjart og þess vegna er ég komin í sumarskap. Það er ótrúlegt hvernig maður getur fundið tíma til þess að gera random hluti þegar maður á einmitt að vera að gera eitthvað annað. Í hvert skipti sem prófatímabil byrjar fer ég skyndilega að gera einhverja hluti sem ég myndi annars ekki gera, einmitt þegar ég á að vera að læra. Allavega, nú sit ég hérna og á að vera að læra efnið sem ég ætlaði að læra í gær en nennti ekki og mig langar bara að sumarið hefjist. Það er langt síðan ég hef hlakkað svona til sumarsins því ég hafði eitthvað raunverulegt til þess að hlakka til og ekki bara vegna þess að ég myndi fá frí í skólanum. 


Ég læt mig oft dreyma um ferðina sem ég ætla að taka til Parísar í júní. Vá, hvað ég er spennt. Ég ákvað að fara bara ein til þess að prófa að ferðast ein fyrir alvöru. Ég mun geta gert nákvæmlega það sem ég vil án þess að þurfa að spá í einhvern annan. Það væri alveg gaman að fara með einhverjum öðrum og mamma bauðst meira að segja til að fara með mér en mig langaði bara að fara ein og sjá hvernig það er. Ég ætla á söfn og í búðir og sitja á kaffihúsum og lesa og ekki hugsa um neinn annan og það verður frábært. Ég meina, ég bý ein svo það er ekki eins og ég hugsa voðalega mikið um annað fólk hversdagslega en það verður samt næs. 


Ef ég er ekki að hugsa um Parísarferðina er ég að hugsa um sumarvinnuna sem ég fékk. í fyrsta skipti á ævinni er ég spennt yfir því sem ég er að fara að gera í sumar. Engar skurðstofur eða dimmur spítalagangur, engin fýla af glassúr og gömlu fólki að öskra á þig og bara smá af blómavasa- og sokkaafgreiðslu því ég ætla samt að halda mig við reglulegu vaktirnar mínar í helgarvinnunni. Í sumar verð ég að ferðast á milli skóga landsins að sjá um mælingar á náttúru Íslands fyrir verkefni varðandi eftirlit vistkerfa og lífbelta. Já, ókei, þetta er kannski skítavinna alvöru vísindamanna og rannsakenda, en ég mun samt vera að hjálpa við rannsóknir. Stórar, mikilvægar rannsóknir! Mér finnst þetta svo spennandi ég er alveg að springa af eftirvæntingu. Ég mun fá að gera alvöru mælingar sem verða notaðar í raunverulegar rannsóknir og ég verð úti í náttúrunni að ferðast um allt landið! Nei sko mig langar að hrópa þetta af þaki öskju í staðinn fyrir að sitja hérna og þurfa að rifja upp tölfræði. Mig langar að allir á landinu viti þetta. Kæru landsmenn, hér með berst tilkynning um starfstækifæri sem bauðst henni Kolbrúnu Garðarsdóttur, fyrsta árs nema í líffræði við Háskóla Íslands, um sumarvinnu þar sem hún mun framkvæma mælingar og afla upplýsinga sem notaðar verða í rannsóknarverkefni á alþjóðavísu. Hún mun afla svo mikillar reynslu í rannsóknarvinnu og hún ætlar að spyrja svo margra spurninga að allir sérfræðingar sem hún kemst í návígi við eiga annað hvort eftir að finnast hún vera efnileg verðandi vísindakona eða vera ótrúlega pirrandi. 


Ef ég ætla hins vegar að verða almennileg vísindakona þarf ég víst að kunna tölfræði svo ég þarf núna að einbeita mér að henni. Því miður.

Recent Posts

See All
Fyrsta snjókoman

Fyrsti alvöru snjór vetrarins fellur niður úti og hefur verið að gera það í allt kvöld. Það er eitthvað við að sjá snjókornin lýstast upp undir ljósastaurshausnum fyrir utan gluggann og að liggja uppi

 
 
 
Ég er allavega ekki með námskvíða.

Ókei, miðannarprófin eru búin og ég er komin meira en helminginn inn í fyrstu önnina af háskólanámi. Það er meira að segja u.þ.b. mánuður í fyrsta lokapróf, sem er algjört brjálæði. Ég gerði mér bara

 
 
 

Comments


Share your thoughts...

Message Received!

© 2023 by Thoughts Express. All rights reserved.

bottom of page