top of page

Kirkjudyr

  • 2 days ago
  • 2 min read

Ég er búin að vera að semja og semja síðustu mánuði og mér finnst eins og hvert nýtt lag verður betra en það síðasta. Fyrir utan missing, ég elska það lag svo mikið. Allavega, ég ætla að pósta nokkrum lögum sem ég hef verið að semja yfir vorið. Ég samdi fyrsta erindið af þessu lagi um daginn og var að klára það áðan. Það er gaman að skrifa um eitthvað sem maður finnur fyrir en svo að ýkja það svakalega. Ég fékk hugmyndina fyrir þessu lagi um daginn þegar felguboltarnir á bílnum mínum brotnuðu og það var svaka vesen og mig bara langaði svo ekki að díla við það. Einhverjum tíma seinna samdi ég fyrstu línurnar í þessu lagi og mér datt í hug einhver persóna sem tímir ekki að takast á við vandamálin sín og vorkennir sér geggjað mikið. Svo lagið hljómar kannski sorglega en ef maður les textann þá er það eiginlega bara soldið fyndið.


Kirkjudyr


C og Fmaj7 til skiptis í erindum



erindi 1


verður mér hleypt inn í þessa kirkju


ef ég banka nógu fast?


ef ég hrópa og kalla, ef ég hleyp nógu hratt?


prestur, ætlarðu að leyfa mér að falla?


blár litur blómstrar mér á hjám, 


ég hef gengið dali og hæðir fjalla


og ég læt það á mér sjá



viðlag


F       C

ég skal stinga á blöðrurar sjálf

 Am           C

hælana þekja og verða opin sár

           F     C

hvaða mun sérð þú á milli svitadropa og társ?

    Am         C

og hvaða kirkjudyr lokast á þreyttan ferðalang?



erindi 2


strekktar ólar sitja á herðum mér


pokinn þyngist við hvert einasta skref


hef ekki komist svo langt, en ég lofa þér að


ég dreg fæturna uppgefna á eftir mér


hvert þarf að komast til þess að teljast sem


einhver sem á skilið meira en hann gefur frá sér


er það ekki hví þessi kirkja var byggð? 


er það ekki því við þurfum einhvað til að leita í?



viðlag

     F       C

ég sting á blöðrurar sjálf

 Am           C

hælana þekja og verða opin sár

           F     C

hvaða mun sérð þú á milli svitadropa og társ?

    Am         C

og hvaða kirkjudyr lokast á þreyttan ferðalang?





Recent Posts

See All
Amy

Þetta lag bullaði ég bara upp og það er ekki byggt á neinum (fyrir utan fyrsta erindið smá...) Aftur, hljómarnir eru ekki á réttum stöðum. Þegar maður kennir sjálfum sér á gítar þá man maður ekki allt

 
 
 
Alveg óvart

Þegar ég paste-a þessu úr google docs þá fara hljómarnir á vitlausa staði og ég nenni alls ekki að laga þá fyrir allt lagið svo þeir verða bara á vitlausum stöðum, það skiptir engu máli hvort sem er.

 
 
 
Truth is

Um daginn gat ég ekki sofið því ég var að hugsa um allt það sem mig langaði að öskra á fyrrverandi. Í staðinn skrifaði ég ógeðslega petty ljóð sem ég breytti svo í lag, og ég held að þetta sé besta la

 
 
 

Comments


Share your thoughts...

Message Received!

© 2023 by Thoughts Express. All rights reserved.

bottom of page