top of page

Alveg óvart

  • 2 days ago
  • 2 min read

Þegar ég paste-a þessu úr google docs þá fara hljómarnir á vitlausa staði og ég nenni alls ekki að laga þá fyrir allt lagið svo þeir verða bara á vitlausum stöðum, það skiptir engu máli hvort sem er. Þetta lag er um það að þykjast vera ekki hrifinn af einhverjum en það er frekar augljóst. Það er ótrúlega gaman að spila það og er orðið eitt af uppáhalds lögunum mínum sem ég hef samið. Það er soldið silly.


Alveg óvart


E

A


E         A

Ég leita sko ekki að þér

E      A

heldur mæti ég bara einmitt þangað sem þú ert og ég sver að 

E      A                E

ég kíki sko ekki hvort þú sért á vakt þegar ég er að vinna

A    E

eða hvort að þú hafir hringt þig veikan

       A

eða daginn eftir

        E A               E

eða hvort þú sért að fara úr bænum um helgina


A

E

A


E      A

Ég passa mig sko alls ekki um að 

E       A

fara ekki í áfanga sem þú skráir þig ekki í, ég lofa

E       A E

að ég mæti sko alveg í partí þótt þú segist ekki vera að fara

A          E

því ég vil bara hafa gaman

        A         E

það kemur þér ekki við

       A

hvort ég drekki of mikið og svo sjái þig



E A      

óvart, þegar ég rakst í öxlina á þér

E             A     E

óvart, fyrirgefðu ég sá þig ekki hér

E           A     E

óvart, ég sver, ég var bara að gleyma mér

A D E

alveg, alveg óvart

A D E

alveg, alveg óvart


A

E

A


E    A

Ég reyni ekki að tala við þig

E            A

heldur tala ég bar’ út í loftið, skyndilega ertu þarna

E     A     E

og það varð svo til að þú féllst í dönsku og líffræði

MUTE

heppinn þú, ég er góð í því bæði

E    A    E

já, ég meinti sko ekkert með því þegar ég sagði að ég vær’ að fara

A    E

því þú varst að segjast vera að koma

A

ég er bara að djóka

              E A         E

því það hefur sko alls ekkert að gera með þig


A

E

AE


  A

Ég hugsaði sko ekki um þig

E A

þegar ég klæddi mig í morgun og hvort þér finnist ég sæt í pilsi

E    A           E

og ég spáði sko ekkert í það þegar þú mættir ekki í stærðfræði 

A E

æ gæti ég fengið smá næði

        A

viltu láta mig í friði

E     A

og ég geri þetta ekki viljandi



E   A      

óvart, ó úps ég settist niður hjá þér 

E            A

óvart, höndin þín strauk höndin’ á mér

E         B A

óvart, þetta gerist alltaf alveg óvart

D E

alveg, alveg óvart

D E

alveg, alveg óvart

D  Dsus2 E

alveg, alveg óvart

Recent Posts

See All
Amy

Þetta lag bullaði ég bara upp og það er ekki byggt á neinum (fyrir utan fyrsta erindið smá...) Aftur, hljómarnir eru ekki á réttum stöðum. Þegar maður kennir sjálfum sér á gítar þá man maður ekki allt

 
 
 
Kirkjudyr

Ég er búin að vera að semja og semja síðustu mánuði og mér finnst eins og hvert nýtt lag verður betra en það síðasta. Fyrir utan missing, ég elska það lag svo mikið. Allavega, ég ætla að pósta nokkrum

 
 
 
Truth is

Um daginn gat ég ekki sofið því ég var að hugsa um allt það sem mig langaði að öskra á fyrrverandi. Í staðinn skrifaði ég ógeðslega petty ljóð sem ég breytti svo í lag, og ég held að þetta sé besta la

 
 
 

Comments


Share your thoughts...

Message Received!

© 2023 by Thoughts Express. All rights reserved.

bottom of page